Kæru viðskiptavinir, Vegna breytinga hjá Ísland.is þarf Staðlaráð Íslands að skipta yfir í nýtt innskráningarkerfi í vefverslun sinni. Innskráningin sjálf breytist ekki að ráði og byggir áfram á notkun rafrænna skilríkja notenda en þau fyrirtæki sem hafa gefið starfsmönnum umboð vegna reikningsviðskipta eða áskriftarsamninga þurfa að endurnýja þau umboð í nýju kerfi. Eldra kerfi verður tekið úr sambandi 1. september og því mikilvægt að ráðast í nauðsynlegar breytingar strax til að tryggja hnökralausa aðlögun og koma í veg fyrir töf á viðskiptum. Leiðbeiningar um aðgerðir má finna hér.
Alþjóðlegu staðalasamtökin ISO hafa gefið út fyrsta alþjóðastaðalinn um búnað til að bjarga fólki úr sjó. Fullt heiti staðalsins er ISO 19898:2019 Ships and marine technology - Life-saving appliances and arrangements - Means of recovery of persons. Þar eru tilgreindar virknikröfur sem gera þarf til búnaðar sem ætlaður er til að bjarga fólki úr sjó um borð í skip og prófunarkröfur sem slíkur búnaður þarf að standast til að fást samþykktur. Skorað á alla að innleiða lágmarkskröfur Staðallinn varð til í framhaldi af setningu nýrrar reglu í alþjóðasamþykktinni um öryggi á heimshöfunum, SOLAS. Reglan gerir kröfur til allra útgerða skipa sem falla undir samþykktina (skip 500 tonn og stærri sem sigla á alþjóðlegu hafsvæði), að skip þeirra hafi ferli og áætlun um hvernig áhafnir þeirra skuli standa að björgun manna úr sjó. Sýna þarf fram á hægt sé að framkvæma björgun með skjótum og öruggum hætti, án verulegrar áhættu fyrir þá sem að henni standa og þá sem er verið að bjarga. Skorað var á alla sem eiga aðild að Alþjóða Siglingamálastofnuninni, þar á meðal Ísland, að innleiða regluna sem lágmarkskröfur. |
|
Alþjóðlegur staðall sem á alfarið uppruna sinn og tilurð á Íslandi
Pétur Th. Pétursson, framkvæmdastjóri Markus Lifenet, vann að gerð nýju reglunnar innan SOLAS sem tæknilegur ráðgjafi í sendinefnd Íslands á fundum Alþjóða Siglingamálastofnunarinnar. Hann var síðan fenginn til að skrifa drög að hinum nýja staðli og leiða í gegnum samráðsferli tækninefndar Alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO. Staðallinn er líklega fyrsti alþjóðlegi staðallinn sem á alfarið uppruna sinn og tilurð á Íslandi og byggir á þriggja áratuga reynslu og þekkingu hérlendis.
Staðallinn er fáanlegur í Staðlabúðinni: ISO 19898